Vísindin styðja ekki fullyrðingar um að heimur sé á heljarþröm, segir Frosti Sigurjónsson, hagfræðingur og höfundur bókarinnar Hitamál. Þar er stefna Íslands í loftslagsmálum brotin til mergjar og margt gagnrýnt. Frosti telur að fréttir um áhrif af hlýnun jarðar séu gjarnan ýktar, svo sem að hafstraumar, sem gera loftslag mildara á norðurslóðum, muni líklega stöðvast vegna hlýnunar af mannavöldum. „Sú spá […]