
Er borgarstjóri Reykjavíkur blind á jafnrétti?
Inngangur: Aðeins ein ástæða er fyrir þessum skrifum og það er „falið“ og ekki falið misrétti á Íslandi. Okkur væri hollara að laga til heima hjá okkur áður en við neitum að taka á móti nýbúum. Víða er pottur brotinn í þeim skilningi að ekki er sama hver er Jón og sér Jón. Gömul saga og ný og svo er reynt að fletja þessa hegðun niður með því að segja að þetta sé bara pólitísk ákvörðun! Góð eða ekki góð aðferð svo efnameira fólk og „mikilsmetnara“ geti skriðið upp bak þeirra sem ekki eru efnalega betur staddir ásamt því að vera ekki „góður pappír“. Til samanburðar er lítil færsla úr Facebook þar sem hugsanlega „betri pappírar“ í formi huglægra afreksmanna fá afhent húsnæði án þess að lífsnauðsynlega þurfa þess. Höfundur er samt glaður að „Karlar í skúrnum“ fái húsnæði perse. Heldur samanburðurinn við fólkið sem er að berjast fyrir tilveru sinni sem áður er bent á. Höfundur spyr sig hvað sé hér í gangi og gegnum Íslandssöguna þegar kemur að jafnræði sem kallað er jafnrétti og pólitísk ákvörðun? „Ekki gera mannamun“ var manni innprentað!
Tek skýrt fram að ekki er verið að fara í persónur og leikendur heldur það sem virðist vera innbyggt í íslenska þjóðarsál.
Friðrik Kjartansson. Umhverfisvitund byrjar með réttlæti! Engu öðru.

Samantekt: Um fólk búandi í hjólhýsum í Reykjavík
Samantekt er um fólk búandi í hjólhýsum og húsbílum í Reykjavík. Fólkið er kallað hjólabúar. Þetta er saga hjólafólksins. Fyrst bjó það á tjaldsvæðinu í Laugardal. Svo var það flutt á iðnaðarsvæði á Sævarhöfða. Það hefur barist fyrir því að fá góðan og varanlegan stað til að búa á.
Aðstæður á Sævarhöfða
Hjólabúar voru fluttir frá Laugardal á iðnaðarsvæði við Sævarhöfða. Þetta gerðist í júní 2023. Þetta átti að vera tímabundin lausn í 8 til 12 vikur en nú hafa þau búið þar í næstum ár.

Hvernig eru aðstæðurnar?
- Ekkert öryggi: Svæðið er opið og það er engin girðing. Íbúum finnst þeir ekki vera öruggir. Þeir eru hræddir við ókunnugt fólk og þjófnað.
- Umhverfið: Svæðinu er lýst sem sorphaug. Það er mikið drasl og óhreint. Það er gömul verksmiðja á svæðinu sem er að hrynja. Gluggarnir eru brotnir og það eru glerbrot á jörðinni. Það eru líka margar dúfur.
- Hávaði: Það er mikil umferð fram hjá svæðinu allan daginn og alla nóttina. Þetta veldur miklum hávaða. Þess vegna er erfitt að vera úti eða tala saman.
- Engin aðstaða:
- Í langan tíma fékk fólk vatn úr slöngu. Það var lokað fyrir slönguna þegar það var frost.
- Það kom ekki heitt vatn fyrr en vorið 2024. Það er bara heitt vatn í vöskum. Það er ekki heitt vatn í sturtu. Það er engin sturta á svæðinu.
- Borgin lofaði að þrífa svæðið og setja upp girðingu. Það hefur ekki verið gert.

Sagan: Tjaldsvæðið í Laugardal
- Hjólabúar byrjuðu að búa saman á tjaldsvæðinu í Laugardal.
- Fyrst þurftu þau að fara á sumrin. Þá komu ferðamenn á svæðið.
- Í Covid-faraldrinum fengu þau að búa þar allt árið. Borgarráð leyfði þeim að leigja til langs tíma. Leigan var lækkuð úr 43.000 krónum í 25.000 krónur á mánuði.
- Svo komu ferðamenn aftur. Þá runnu leigusamningarnir út í maí 2023. Fólkið þurfti að fara af svæðinu.
Stjórnmál og lausnir
- Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flokkur fólksins):
- K. Áslaug hefur fylgst með málinu lengi. Fyrir 6 árum lagði hún til að finna sérstakt svæði fyrir hjólhýsi. Hún sagði að önnur lönd gerðu þetta. Tillagan var ekki samþykkt.
- Kolbrún segir að aðstæðurnar á Sævarhöfða séu hræðilegar. Hún segir að þetta sé eins og sorphaugur. Hún vill að það verði strax fundið betra svæði.
- Sumir velja að búa svona. Aðrir verða að búa svona af því þeir hafa ekki efni á öðru. Segir Kolbún
- Geirdís Hanna Kristjánsdóttir (Sósíalistaflokkurinn og íbúi):
- G. Hanna er í forsvari fyrir samtök hjólabúa.
- Hún segir að fólk sé alltaf óöruggt. Hún segir að aðstæðurnar á Sævarhöfða séu slæmar.
- Enginn vilji taka ábyrgð á málinu að sögn G. Hönnu.
- Geirdís .H vill að nýtt svæði verði rekið eins og húsfélag. Það á að vera með skýrar reglur. Nýir íbúar eiga að vera á reynslutíma. Það á að vera refsing ef fólk brýtur reglurnar.
- Samningur um land í Gufunesi (2026):
- Í apríl 2026 samþykkti borgarráð að gera samning við hjólabúa. Samningurinn var um land í Gufunesi fyrir nýtt hjólhýsasvæði.
- Tveimur mánuðum seinna var kominn nýr meirihluti í borgarráð. Nýi meirihlutinn sagði upp samningnum.
- Af hverju sagði borgin upp samningnum? Borgin sagði að það kostaði of mikið að undirbúa landið. Það þurfti að tengja vatn og rafmagn. Það þurfti líka að byggja klósett og sturtur. Borgin sagði að þetta myndi kosta 50 til 60 milljónir króna.
- Hvað sögðu hjólabúar? Geirdís Hanna varð fyrir miklum vonbrigðum. Hún segir: Samtökin fóru aldrei fram á að borgin myndi borga allt. Við vildum bara að borgin myndi leggja grunninn. Hún sakar Einar Þorsteinsson, þáverandi borgarstjóra, um að hafa aldrei viljað hitta þau.
- Sanna Magdalena Mörtudóttir (Vinstri)? Hún sagði að það væri ömurlegt að segja upp samningnum. Hún segir:
- ,,Borgin á að hjálpa fólki sem velur að búa svona.”
Hvað vilja hjólabúar?
- Varanleg lausn: Það þarf að finna varanlegan stað fyrir hjólhýsi. Staðurinn þarf að vera í fallegu umhverfi. Hann þarf að vera nálægt þjónustu og strætó.
- Góðar aðstæður: Íbúar vilja öryggi, hreinlæti og grunnþjónustu, til dæmis vatn og rafmagn.
- Samtal: Íbúar vilja tala beint við borgina. Þeir vilja ekki að ákvarðanir séu teknar án þess að tala við þá.
Lokaskref þeirra sem vilja daðra við fasista!

Uppsögn samnings við hjólhýsabúa í Reykjavík
- Borgarráð Reykjavíkur hefur sagt upp samningi við fólk sem býr í hjólhýsum.
- Samningurinn var um land í Gufunesi og var aðeins tveggja mánaða gamall.
Sjónarmið borgaryfirvalda
- Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir að fólk í hjólhýsum geti leigt pláss á tjaldsvæðum á suðvesturhorninu.
- Ástæður fyrir uppsögninni eru:
- Samningurinn var gerður án samráðs við íbúa í Gufunesi.
- Ekki var til peningur fyrir verkefninu, sem gæti kostað borgina allt að 100 milljónir króna.
- Formaður borgarráðs telur að borgin eigi ekki að borga fyrir fólk sem velur að búa í hjólhýsi þar sem það getur nýtt önnur úrræði borgarinnar.
- Hildur Björnsdóttir sendi uppsögna í bréfi, til borgarráðs þann 8. júní. Í bréfinu var óskað eftir að málið yrði leyndarmál þar til íbúunum yrði tilkynnt um það.
Sjónarmið hjólhýsabúa
- Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, gjaldkeri hjá Samtökum hjólabúa, lýsir yfir miklum vonbrigðum, reiði og sorg vegna ákvörðunarinnar.
- Hún er hissa á að nýi meirihlutinn hafi ekki haft samband við hjólhýsabúana.
- Geirdís segir að þau hafi aldrei beðið borgina um að borga allan kostnað, aðeins um að leggja vatn og rafmagn að landinu, líkt og gert er í nýjum hverfum.
- Vegna uppsagnarinnar þurfi fólkið að vera áfram á Sævarhöfða, sem hún kallar „drullusvað“, þar sem þau hafa búið við slæmar aðstæður í þrjú ár. Segir Geirdís H.

Aðstæður á Sævarhöfða
- G. Hanna lýsir aðstæðum á Sævarhöfða sem óöruggum.
- Ókunnugt fólk gengur um svæðið og veldur ófriði. Hún hefur tvisvar hringt á lögreglu á einum mánuði vegna grunsamlegra mannaferða.
- Aðrir menn hafa fengið aðgang að húsi á svæðinu með þvottavél og þurrkara hjólabúa.
- Umgengni þessara aðila er slæm: þeir hafa stíflað salerni, brotið setu, brotið upp hurð, skilið eftir rusl og eru grunaðir um neyslu ólöglegra vímuefna í húsinu.
- Geirdís segir að þessi slæma umgengni annarra valdi því að fólk haldi að hjólabúar séu sóðar.
Persónuleg reynsla Geirdísar
- Geirdís er vonsvikin og reið fyrir hönd nágranna sinna sem henni þykir vænt um.
- Hún segist aldrei hafa skammast sín jafn mikið fyrir að vera Reykvíkingur.
- G. Hanna hefur misst heimili sitt í eldi þrisvar sinnum:
- Í fyrra missti hún allt sitt í bruna á Sævarhöfða.
- 1990 missti hún heimili sitt á Akureyri í bruna.
- 1978 missti hún föður sinn í bruna á Siglufirði.
Facebook færsla frá 5. september.
Orðrétt.
Karlar í skúrum Reykjavík
Það var létt yfir “Körlum í skúrum” þegar við vorum að flytja verkfæri og vélar inn í nýfengið húsnæðið sem við fengum úthlutað hjá Reykjavíkurborg. Húsnæðið er við Gerðuberg 1. Á eftir fengum við okkur kaffi í kaffistofunni í Gerðubergi á efri hæðinni.

Orðrétt úr Facebook færslunni.
Heimild: Vísir, RÚV, Dv og Facebook
Höfundur: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)