
Hafstraumar eru ekkert að veikjast

Vísindin styðja ekki fullyrðingar um að heimur sé á heljarþröm, segir Frosti Sigurjónsson, hagfræðingur og höfundur bókarinnar Hitamál.
Þar er stefna Íslands í loftslagsmálum brotin til mergjar og margt gagnrýnt.
Frosti telur að fréttir um áhrif af hlýnun jarðar séu gjarnan ýktar, svo sem að hafstraumar, sem gera loftslag mildara á norðurslóðum, muni líklega stöðvast vegna hlýnunar af mannavöldum.
„Sú spá er byggð á tölvulíkani sem fær það út sem forsendurnar segja.
Hins vegar sýna rannsóknir vísindamanna, sem hafa mælt þessa hafstrauma undanfarna áratugi, að þeir hafa ekkert verið að veikjast.
Vísindin styðja ekki fullyrðingar um að heimur sé á heljarþröm,“ segir Frosti.
Heimild: Mbl.is 8 desember 2025
Skráning. Birt orðrétt: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: málfríður.is (Málstaður)