
Af hveru er kílómetragjaldið ekki fast gjald?
Höfundur er Guðni Scheving skrifað 21 desember 2025
Kílómetragjaldið!
Nú hef ég unnið í nokkra áratugi við kvörðun, viðgerðir og löggildingar á ökuritum og allavega mælum svo ég hef smá reynslu í þessum málum.

Þegar kílómetragjaldið var sett á rafmagnsbílana þá tók ég því bara fagnandi að ég væri farinn að borga eitthvað til ríkisins svo hægt væri að halda uppi vegakerfinu okkar, oþh.
Ég var reyndar frekar að vona að það yrði sett t.d. bara fast gjald eins og 50 þús. á ári eða eitthvað svoleiðis en auðvitað ákvað ríkið að fara aðra leið sem væri ekki bara ólögleg í framkvæmd heldur útbúin þannig að alltaf þegar þá vantar meiri pening þá er alltaf hægt að stökkva þarna og hækka þetta án mikils fyrirvara svo það er enginn fyrirsjáanleiki þarna og aldrei hægt að sjá í hvað peningarnir fara.
Nú var ákveðið að halda áfram þessari vegferð Sigurðar Inga og skella þessu gjaldi á alla eldsneytisbíla og jafn vitlausu fyrirkomulagi haldið áfram.
Ég held að ég hafi aldrei kvarðað mæli í japönskum bíl án þess að hann sýni 100 km hraða þegar bíllinn er á 92-94 km, svo það er alltaf skekkja í þeim upp á 7-8%.
Volvo var nánast alltaf með skekkju upp á 18% hérna áður fyrr, ég veit ekki hvernig það er í dag.
En miðað við þetta þá eru allir þessir bíleigendur að fara að greiða 7-18% of mikið fyrir hvern ekinn kílómeter sem verða hellingsupphæðir þegar þetta safnast saman.
Myndir þú nokkurn tímann sætta þig við það að rafmagnsmælirinn þinn eða heitavatnsmælirinn væri bara circa réttur?
Að þú værir kannski að borga circa 10% of mikið?
Eða á bensíndælunni ef þú fengir 1/2 tank fyrir 5 þús. kall á þessari bensínstöð en næstum því hálfan tank á þeirri næstu?
Það er vegna þess að það er í lögum að það má ekki rukka eða selja út frá neinni mælieiningu án þess að mælirinn sé kvarðaður og vottaður.
Nú komum við akkúrat að því sem er athyglisvert og það er það að í flesta bíla í dag er hægt að fá búnað sem heitir milage blocker eða einhverjum svoleiðis nöfnum.
Þetta er í flestum tilfellum bara einhver kubbur sem þú setur í bílinn og þá hættir km mælirinn að telja.
Oft er hægt að starta og stoppa þennan búnað bara með því að blikka háu ljósunum 5 sinnum eða eitthvað svoleiðis svo það er hægt að láta þetta virka þegar maður fer með hann í skoðun eða er tekinn í eftirlit.
Stóra málið er að það er ekkert ólöglegt við þetta.
Þú átt bílinn og mælinn, ríkið er ekki búið að kvarða mælinn eða innsigla hann að nokkru leyti svo það er ekkert hægt að gera við þig lagalega út af þessu.
Ríkið er ekki búið að gefa það út að það megi ekki hreyfa við þessum mæli og þau geta það ekki vegna þess að hann er ekki löggildur.
Þetta þýðir auðvitað að eftir nokkur ár munum við fara að sjá ótrúlega mörg dæmi þar sem fólk kaupir sér bíl úti á bílasölu og bíllinn á bara að vera ekinn 50 km en er í rauninni ekinn 250 km og það verður einhver svakaleg lagaleg flækja varðandi hver gerði þetta, hvenær var þetta gert og hver á að borga.
Ég mun alltaf geta sagt úti á bílasölu að ég hafi ekki vitað af neinu bara á meðan ég passa upp á að vera búinn að taka kubbinn úr og þá er bara hægt að benda á fyrri eiganda sem veit þá heldur ekkert hvað er verið að tala um.
Í eðlilegri aðgerð hjá ríkinu væri ég ekkert að tala um eða útskýra hvernig væri hægt að sleppa við þetta kílómetragjald en þetta er ekki eðlileg aðgerð.
Ríkið segist vera að lækka bensínlíterinn sem nemur þessu en á sama tíma stökkva öll olíufélögin upp og segja að líterinn sé ekki að lækka svona mikið út af hinum og þessum ástæðum svo þetta er engin leiðrétting, þetta er bara meiri skattbyrði á bíleigendur.
Ég er sannfærður um að ef einhver tæki sig til og myndi neita að greiða reikninginn fyrir þessu kílómetragjaldi þá væri ekki hægt að fella viðkomandi fyrir dómi.
Svo á meðan þessi aðgerð er ólöglega gerð mun ég alltaf mæla með að allir geri bara það sem þeir vilja með þessa ólöglegu mæla sína þar sem engin krafa er um að þeir verði að sýna rétt.
Höfundur: Guðni Scheving
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)