
Íslensk stjórnvöld fullgildir samning um verndun úthafa

Ísland hefur samþykkt nýjan samning um hafið
Samningurinn heitir BBNJ-samningurinn. Hann er hluti af hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið er að vernda lífið í hafinu. Þetta á við um svæði sem ekkert ríki á.
Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfisráðherra. Hann fór á ráðstefnu í Frakklandi í júní. Á ráðstefnunni sagði Jóhann Páll að Ísland myndi hjálpa til við að samþykkja samninginn.
Ísland á að taka þátt
Tvö ráðuneyti sendu frá sér tilkynningu. Það voru utanríkisráðuneytið og umhverfisráðuneytið. Í tilkynningunni stendur að þetta sé í fyrsta sinn sem búið er til kerfi til að vernda hafið. Þetta kerfi verndar svæði sem ekkert ríki á.
Í tilkynningunni stendur líka: Ríki geta unnið saman að því að vernda hafið. Þau geta líka unnið saman að því að nota hafið á góðan hátt. Samningurinn á líka að hjálpa stofnunum að tala saman. Þetta eru stofnanir sem vinna nú þegar við hafið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra. Þorgerður Katrín segir:
Það er mjög mikilvægt að Ísland taki þátt. Ísland á að vera með þegar rætt er um málefni hafsins.

Ný lög um hafið taka gildi 17. janúar 2026
Sameinuðu þjóðirnar byrjuðu að vinna að nýjum lögum um hafið árið 2005. Markmiðið var að vernda lífið í hafinu. Þetta á við um hafsvæði sem ekkert eitt ríki á.
Nú er kominn nýr samningur um þetta. Samningurinn er orðinn að lögum. Til þess þurftu 60 lönd að samþykkja hann.
Nógu mörg lönd samþykktu samninginn í september. Lögin taka gildi 17. janúar 2026.
Þetta er í fyrsta skipti sem það eru til lög um þessi hafsvæði. Lögin eiga að vernda lífið í hafinu. Lögin eiga líka að tryggja að við notum hafið á góðan hátt.
Þessi svæði eru mjög stór. Þau ná yfir helminginn af jörðinni. Áður var lítið eða ekkert eftirlit með þessum svæðum.
Heimild: Morgunblaðið 18. desember 2025. mbl.is
Útgáfudagur: 18 desember 2025
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)