• einjord@outlook.com
Umhverfisglæpir
Hreinsa olíumengun við íbúðarhús eftir tveggja ára bið

Hreinsa olíumengun við íbúðarhús eftir tveggja ára bið

Heilbrigðiseftirlit Austurlands ætlar að hreinsa olíumengaða íbúðalóð á Eskifirði á næsta ári. Þá verða nærri tvö ár síðan þeim var tilkynnt um mengunina

Ólöf Rún Erlendsdóttir. 28. desember 2025 kl. 17:06, uppfært kl. 18:56

Lyktarmengun hefur verið íbúum í þessu húsi á Eskifirði til ama síðan í mars á síðasta ári. Olía lak í jarðveginn úr gömlum olíutönkum á næstu lóð.
RÚV – Rúnar Snær Reynisson

Heilbrigðiseftirlit Austurlands ætlar að hreinsa olíu úr jörðinni á tveimur lóðum á Eskifirði. Fyrirtækið Mógil ehf. átti að hreinsa jarðefni kringum húsið en gerði það ekki. Heilbrigðiseftirlitið reyndi oft að fá Mógil ehf. til að hreinsa. Heilbrigðiseftirlitið að hreinsa sjálft.

Það telst nú fullreynt og verða lóðirnar hreinsaðar á kostnað fyrirtækisins á nýju ári.

ÞÞað fer að nálgast tvö ár síðan íbúar á Eskifirði urðu varir við olíumengun á tveimur lóðum.

Á annarri lóðinni stendur hús í eigu Mógli ehf., með gömlum tönkum frá tímum olíukyndingar.

Mógil ehf. sem á lóðirnar tvær geymir gamla tanka frá dögum olíukyndingar á annarri lóðinni.

Í næsta húsi hefur fjölskylda búið við megna olíulykt síðan í mars 2024. Eftir að börn komu olíublaut heim eftir útveru barst grunurinn fljótt að tönkunum á næstu lóð.


31. október 2025

Gert að hreinsa lóðina á næstu tveimur vikum

Selma Margrét Sverrisdóttir. 31. október 2025 kl. 11:36, uppfært kl. 12:11

Olíutankar í garði á Eskifirði og hús fólksins sem þarf að þola mengunina í bakgrunni.
RÚV – Rúnar Snær Reynisson

Heilbrigðisnefnd Austurlands hefur samþykkt að fella niður dagsektir. En þá húseigendur á Eskifirði hreinsi lóðina fyrir 15. nóvember.

Verði það ekki gert skal heilbrigðiseftirlitið sekta um hreinsun á kostnað eiganda.

Verkfræðistofan Efla var í haust fengin til að rannsaka mengunina og leggja til aðgerðir.

Í ljós kom að olíumengun var 28 sinnum meiri en leyfilegt er í íbúabyggð.

Þetta stendur í bókum heilbrigðisnefndar. Það á að hreinsa lóðina fyrir 15. nóvember. Það stendur í verkáætlun. Hvað gerist ef lóðin verður ekki hreinsuð? Þá sér heilbrigðiseftirlitið um að hreinsa lóðina. Eigandinn þarf að borga fyrir það.


23 janúar 2025

Gamlir olíutankar tifandi tímasprengjur í húsagörðum

Gamlir tankar frá tímum olíukyndingar eru tifandi tímasprengjur í húsagörðum víða um land. Á Eskifirði lak olía úr slíkum tönkum og mengaði garð og kjallara nágranna. Sá sem ber ábyrgð á menguninni hefur ekki brugðist við þrátt fyrir dagsektir.

Rúnar Snær Reynisson

Olíutankar í garði á Eskifirði og hús fólksins sem þarf að þola mengunina í bakgrunni.
RÚV – Rúnar Snær Reynisson

23. janúar 2025 kl. 10:13. Rúnar Snær Reynisson

Við Strandgötu á Eskifirði standa húsin þétt og á milli tveggja húsa eru gamlir olíutankar grafnir í jörð og tilheyra húsi númer 61.

Í mars í fyrra fór að bera á olíulykt í næsta húsi neðan við tankana.

Þar býr fjölskylda með fimm börn og uppgötvaðist lekinn úr tönkunum þegar börnin komu olíublaut inn úr feluleik.


6. janúar 2025

Fjölskylda á Eskifirði býr við olíumengun og dagsektir hafa engu breytt

Íbúar í húsi við Strandgötu á Eskifirði hafa glímt við olíulykt í húsi sínu í að verða eitt ár. Fyrirtækið sem á húsið við hliðina og olíutanka sem láku hefur ekki brugðist við, jafnvel þó að dagsektir hafi hlaðist upp í rúma tvo mánuði.

6. janúar 2025 kl. 12:46, uppfært kl. 15:17. Rúnar Snær Reynisson

Fyrir miðju er Strandgata 61 þaðan sem mengunin kemur. Lyktarmengun hefur verið íbúum í húsinu til vinstri til ama.
Götuvefsjá – ja.is

Dagsektir hlaðast á fyrirtæki sem á hús á Eskifirði sem hefur ekki hreinsað olíumengaðan jarðveg á lóðinni.

Olíufnykur angrar fólk sem býr í næsta húsi.

Börnin komu inn olíublaut

Við Strandgötu 61 á Eskifirði stendur hús í eigu fyrirtækisins Móglí og við það eru gamlir tankar frá tímum olíukyndingar.

Í tönkunum voru olíuleifar og í mars í fyrra varð vart við mengun.

Íbúar í næsta húsi fundu lykt en vissu ekki hvaðan hún kom og því var ólíft í húsinu.

Einn daginn komu börnin olíublaut inn úr feluleik og þá bárust böndin að tönkum við næsta hús.

Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Austurlands fóru á staðinn, staðfestu mengun og létu tæma tankana.

Kröfur voru gerðar á fyrirtækið sem á húsið og ber ábyrgð á tönkunum.

Heilbrigðiseftirlitið fékk sérfræðing frá Olíudreifingu til liðs við sig, mann sem hefur reynslu af viðbrögðum við mengun.

Í framhaldinu var plast lagt yfir ósteypt kjallaragólfið í íbúðarhúsinu og barki þræddur þar inn með loftdælu sem tryggir ein loftskipti á hverjum klukkutíma.

Dagsektir komnar yfir 1,3 milljónir

Heilbrigðiseftirlitið hefur reynt í marga mánuði að fá fyrirtækið Móglí til að gera tvennt. Í fyrsta lagi að fjarlægja olíutanka og í öðru lagi að skipta um jarðveg. Það hefur ekki tekist.

Dagsektir voru lagðar á fyrirtækið frá 1. nóvember, 20 þúsund krónur á dag.

Þær eru enn að safnast upp og eru komnar yfir 1,3 milljónir króna.

Fréttastofan segir að það komi stundum olíulykt í húsinu. Þetta gerist sérstaklega þegar það rignir. Íbúunum finnst þetta mjög leiðinlegt.

Eftir því sem fréttastofa kemst næst komu olíutankarnir frá Shell á sínum tíma sem útvegaði fólki tanka við hús og fylgdu þeir með í kaupum þegar fasteignin var seld.

Móglí er málningarfyrirtæki í Hafnarfirði. Fyrirtækið er ekki með starfsemi á Austurlandi.

Við reyndum að hringja í fyrirtækið þegar við vorum að skrifa fréttina en símanúmerið virkar ekki.


30 april 2014

Gleymdir tankar skapa sprengihættu

Ríkisútvarpið

30. apríl 2014 kl. 19:58

Mildi þykir að ekki fór verr þegar öflug sprenging varð í tanki undir aflagðri bensínstöð Olís í Neskaupstað.

Fyrirtækið lét ekki fylla tankinn með sandi líkt og skylt er.

Frá því síðdegis í gær hefur eins konar sprengigígur verið við gömlu bensínstöðina í Neskaupstað.

Smiður var að skera burt loftunarrör með slípirokki og við það kviknaði í bensíngufum.

Járnstyrkt steypuplatan fór nánast í mél en það varð smiðnum til happs hvað tankurinn liggur djúpt.

Svona tanka sem skildir eru eftir í jörðu á að fylla með sandi.

Allavega gerðum við það ekki og heilbrigðiseftirlitið fylgdi því ekki eftir að það yrði gert.

Byggingarfulltrúi tók það ekki út þegar það var farið af stað með félagsmiðstöðina þarna.

Fullt af bjöllum sem hefðu átt að hringja en gerðu það ekki,

segir Samúel Sigurðsson útibússtjóri Olís.

Heilbrigðiseftirlitið segist lítil afskipti hafa haft af stöðinni enda hafi reglugerð um mengandi starfsemi rétt náð að taka gildi áður en stöðin var aflögð.

Hún hafi því í raun aldrei verið háð starfsleyfi.

Sá sem keypti eignina af Olís árið 2004 fékk afsal þar sem lofað var að tankar yrðu gerðir hættulausir í samvinnu við heilbrigðiseftirlit innan nokkurra mánaða.

Þegar tankurinn sprakk voru liðin næstum tíu ár.

Svo mikið er ljóst að það er hvergi í gögnum heilbrigðiseftirlitsins bréf eða erindi þar sem er óskað eftir að við tökum út staðinn í lok starfseminnar.

Ég er búin að senda póst til allra olíufyrirtækjanna og biðja þau um að huga að tómum tönkum á sínum bensínstöðvum því að við verðum að læra af svona hlutum,

segir Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands.

Nú taka við fundahöld um hvort fjarlægja eigi tankana í Neskaupstað en hættan er liðin hjá því gufur myndast ekki á sama hátt í dísiltönkum.

Gamlir tankar leynast líka við íbúðarhús.

Samúel segir:

Það er góð ástæða til að fjarlægja gamla húskyndingartanka. Það er kannski ekki gasmyndun í þeim en það er drulla og olía í þeim. Fólk á að láta fjarlægja þetta.


Heimild: Rúv

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Top