• einjord@outlook.com
Umhverfisglæpir
Dularfullur bílakirkjugarður fannst í afviknum helli

Dularfullur bílakirkjugarður fannst í afviknum helli

Einar Þór Sigurðsson Föstudaginn 19. febrúar 2016

Óvenjuleg sjón blasti við hópi ferðamanna sem áttu leið um helli í Ceredigion í Wales á dögunum.

Heilt fjall af ónýtum, gömlum bifreiðum fannst inni í hellinum.

bílrusla_fjall

Bílakirkjugarðurinn var í helli sem eitt sinn var notaður af námuvinnslumönnum en umræddri námu var lokað árið 1960.

Hellirinn, eða náman, er ekki í alfaraleið og segir Gregory Rivolet, einn þeirra sem fann bílana, að hann hafi verið erfiður yfirferðar.

Jarðvegurinn þarna er mjög óstöðugur,

segir Rivolet sem varði fjórum tímum í hellinum.

Erfitt er að komast inn í hann, en Rivolet og kollegar hans þurftu að láta sig síga um 30 metra til að komast í botn hellisins.

Þetta var frekar súrrealískt. Þarna var svartamyrkur, mjög blautt, sleipt og hættulegt.

Og svo rekum við augun í bílakirkjugarðinn,

segir hann.

Ekki liggur fyrir hvaðan bílarnir koma eða hver kom þeim fyrir ofan í hellinum.


Heimild: Er svo. Einar Þór Sigurðsson DV 2016

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Top