
Ruslatínsla #4 11. mars 2026. Frá Óseyrarbrú í vestur.
Óseyrarbrú plokk #IV

Við Óseyrarbrú. Er eitthvað fallegra en landið okkar í hvaða veðri sem er og ekki skemmir nú fyrir íslenski fjárhundurinn Skjálfti?
Annars erum við að leggja í-ann á nýja Exoquad 4×4 V2, nýjustu útgáfuna úr kassanum.
Við ætlum að taka fyrir einn til tvo kílómetra í vestur frá Óseyrarbrú beggja megin við veg.

Það þarf að njóta augnabliksins eins og alltaf en ég er bara að læra að njóta smá saman en mér finnst þetta gagn og gaman en aðallega gaman!
En Skjálfti kann að njóta og gæti ég lært ýmslegt af honum í þeim efnum því hann er alltaf í núinu annað en ég en það er að lagast.

Hér erum við einni klukkustund síðar.
Ég sé að Skjálfti er barasta dauðþreyttur enda hefur hann ekki farið í svona langa gönguferð síðan við sendum
gamla
hjólið okkar í uppfærsluskipti til Noregs til framleiðanda 20. október 2025.
Hefði þurft meira pláss fyrir plokkhlutina en það fer vonandi batnandi því ég er að setja saman heimasmíðaða kerru sem hæfir hjólinu, alla vega í vigt en annað kemur bara í ljós!
Hjólið er með dráttarkúlu.

Eins og ég sagði þá er plássið fyrir plokkhlutina ekki nógu mikið en þá er bara að fara yfir minni vegalengd/svæði í hvert skipti.
Ljósastikurnar eru mér mikill fjársjóður vegna endurnýjanlegrar orku áhugans míns en ég vonast til að geta notað stikurnar fyrir spaða í lóðréttar vindmyllur, en við sjáum til.
Vegagerðin virðist ekki hirða þetta en ég fylgdist með ákveðnum vegspotta í á annað ár til að sannfæra mig um að ég væri ekki að gerast fingralangur en viti menn, jafnvel eftir að vegagerðarvinnuflokkur var á vegakaflanum við störf voru stikurnar skildar eftir svo ég bretti bara upp ermar í einkaframtaki.
Tengt efni

Ruslatínsla Stokkseyrarafleggjari
Texti og myndir: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)