• einjord@outlook.com
Plokkið
Ruslatínsla #5 8. april 2026. Frá Óseyrarbrú í vestur.

Ruslatínsla #5 8. april 2026. Frá Óseyrarbrú í vestur.

Óseyrarbrú plokk #V

Við félagarnir fengum okkur bíl og hjólatúr í dag 8 april 2026. Alltaf mikið skemmtilegra þegar grænka fer að ekki sé mikið rusl í alfaraleiðum.

Búnir að fara um einn kílómetra beggja megin yfir kantana.

Ég sé að Skjálfti er þreyttur.

Það er með ólíkindum hvað kemur raunverulega mikið af rusli af svona stuttu svæði þrátt fyrir að ekki sjáist mikið af veginum þegar ekið er á 90.

Mestallur snjórinn hvarf nánast á einni nóttu en rigning er í grennd og tókst að væta okkur smá.

Vonandi er vorið samt handan við hornið fræga.

Ég og Skjálfti hlökkum til vorsins eins og alltaf og sennilega margar aðrar lífverur.

Hugleiðing Plokkara

Af hverju erum við mannfólkið svona dugleg við að færa normin til og stundum um marga

metra!

Fyrir 50 árum og þar á undan þótti það sjálfsagt að sem flestir væru með í bílferð ef farið væri frá bæ eða heimili, þó ekki nema á milli bæja.

Í dagsins önn í dag sést bara einn maður, að mestu leyti 2 í farartæki sem nær kannski 3-5 tonnum.

Fyrir þessum 50 árum hefði þetta þótt óþarfa sóun!

Hvað breyttist?

Í mínum huga er nýting allra hluta í fullu gildi, líka að fjölmenna með í ferð.

Stend sjálfan mig að þessari sóun líka en kannski ekki á svona risa farartæki núna seinni árin.

Hvað breyttist?


Texti og myndir: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Top