
Ruslatínsla & plokk #12: 18. maí 2026. Norðausta við Lambafellið
Plokk XII

Við félagarnir mættum aftur á sama stað norðaustan við Lambafellið til að klára það sem var eftir þann 13. maí.
Við erum komnir með tvær tunnur eða fjórar þvottakörfur hvor ofan í aðra til að styrkurinn sé nægur.
Mér sýnist svipurinn á Skjálfta segja mér hvort ég ætli ekki að fara að koma mér af stað!

Stundum er urð og grjót og upp í mót, ekki alveg það besta fyrir fallegu og mjúku þófana hans Skjálfta.
En sem betur fer er oft líka gras, grænt yfir sumarið og þá er hægt að velta sér upp úr náttúrugæðunum.

Þá erum við komnir aftur eftir góða stund milli bílismans og náttúrunnar, eins og
milli steins og sleggju.
En það er töluvert sem við þurftum að skilja eftir 13. maí vegna plássleysis á Exoquad (plokkvagninum).

Veðrið er einstaklega gott og Skjálfti þykist góður í að finna skugga þó ekki sé nema að hluta til.
Kallinn varð að fara úr úlpunni og var bara á bolnum (næstum logn) sem er gott en kominn tími til í vorinu sem er smám saman að verða sumar.
Við erum alltaf með nóg vatn með í för, hvort sem er vetur eða sumar, því það er gott að hafa íslenska ómengaða vatnið í malnum.

Hugleiðing: Ekki að ég sé að kvarta yfir frábæru verkefni.
Kannski að ræða um hvort félög sem fulltrúar hverrar stéttar eða hóps fyrir sig, sem noti vegina flest bara mismikið, plokki hver sitt prósent eftir notkun?
Þá er ég að hugsa eftir flokkum eða félagasamtökum svo ekki verði einhver sár. T.d. eru ferðaþjónustan, Vörubílafélagið/in, Fornbílafélagið, Sniglarnir, Sjómannafélagið, Löggufélagið, Flugmannafélagið, Skátar, Bændafélagið, Verslunarmannafélagið og öll hin félögin/hóparnir sem nota samgöngurnar að plokka ákveðið mikið, mælt í tíma, þyngd eða einhverju öðru sem þykir henta.
Þá eru allir að taka þátt í að plokka en ekki bara einhverjir einstaklingar sem hafa
drævið
í það og ástríðuna.
Bara svona þankar.
En svo geri ég mér líka grein fyrir því að það er kannski erfitt í skipulagi og þó sérstaklega framkvæmd, eða hvað?
Við erum flestöll framá um að fá sem flesta ferðamenn til landsins okkar sem við elskum.
Ætti það þá ekki að vera eins hreint og kostur er?
Svo bara hreint fyrir landsmenn líka að sjálfsögðu!
Er það ekki
auglýsing
að hafa hreint meðfram vegakerfinu?
Höfundur: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)