
Borgir kafna í bílum en hér er lausn sérfræðinga
Bílum verður að fækka! Af hverju?

Bílum verður að fækka á götunum segja læknar og umhverfissjérfræðingar. Það eru margar ástæður fyrir því. Fækkun á bílum þýðir:
– hreinna loft
– öruggari götur
– betra loftslag
Við notum líka minna eldsneyti. Sem er gott. Bensín er dýrt og flest lönd þurfa að kaupa það frá öðrum löndum.
Sumar borgir eru með mjög góðar almenningssamgöngur. Samt nota sumir ennþá bílinn sinn. Borgaryfirvöld reyna að finna lausnir á því.
Í öðrum borgum er þetta öðruvísi. Þar eru næstum allir háðir bílum sínum. Þetta er algengt í Bandaríkjunum. Þar er mjög erfitt fyrir fólk að hætta að nota bílinn.
Hvað er til ráða? Sérfræðingar benda á 4 leiðir til að breyta þessu. Hér eru nokkur dæmi:
– Tengja úthverfi betur við borgina.
– Fá frægt fólk til að nota strætó.
1. Gera almenningssamgöngur betri

Vísir/Vilhelm. mbl
Rafbílar eru betri fyrir jörðina en bensínbílar. Samt gera rafbílar göturnar ekki öruggari. Fólk þarf aðra góða kosti til að ferðast á milli staða.
Alissa Kendall er forstöðumaður í háskóla í Kaliforníu. Hún segir:
Fyrsta skrefið er að almenningssamgöngur virki vel fyrir fólk. Ef ferðin varir of lengi eða kemur þér ekki á réttan stað þá virkar það ekki. Þá mun fólk sem á pening fyrir bíl halda áfram að nota bílinn sinn. Það mun heldur ekki hjálpa fólki sem treystir á almenningssamgöngur.
Í Norður-Ameríku eru borgir oft mjög dreifðar og því er erfiðara að tengja þær saman með almenningssamgöngum. Í Evrópu og Asíu er oft þéttari byggð og þar er það auðveldara. Samt getur það sparað peninga að fá fólk til að nota strætó í staðinn fyrir bíl. Zohran Mamdani bauð sig fram sem borgarstjóri í New York. Hann lofaði ókeypis strætóferðum og vann kosningarnar. En rannsóknir sýna að ódýrari miðar fá ekki marga til að hætta að nota bílinn sinn.
Matthias Cremer-Schulte er rannsakandi í Þýskalandi. Hann segir:
Ódýrari miðar hjálpa mest þeim sem nota nú þegar almenningssamgöngur. Fólk sem keyrir bíl þarf oft að vera sveigjanlegt. Það fólk byrjar sjaldan að taka strætó bara af því að miðinn er ódýrari.
2. Pláss fyrir fólk sem gengur og hjólar
Eftir seinni heimsstyrjöldina urðu bílar mjög algengir í borgum. Þess vegna var borgunum breytt til að henta bílum. Fólk sem gekk fékk bara mjóar gangstéttir. Fólk á hjólum þurfti að ákveða hvort það ætti að hætta lífi sínu á götunum.

Borgir geta gert margt til að fá fólk til að nota bíla minna. Þær geta gefið fólki sem gengur og hjólar meira pláss. Þetta er mjög áhrifarík leið. Borgir geta til dæmis:
– Búið til hjólastíga.
– Breytt bílastæðum í garða.
– Breytt götum í göngugötur.
Þannig verður öruggara og þægilegra að ganga og hjóla.
Sumir kalla þetta
stríð gegn ökumönnum/bílum
en þetta er oft tilraun til að nota plássið í borginni betur. Þetta segir Hannah Budnitz. Hún er rannsakandi við Oxford-háskóla. Hún segir:
Bílar noti plássið mjög illa til að flytja fólk. Þetta er sérstaklega slæmt þegar mikil umferð er. Bílar standa líka kyrrir mestan hluta dagsins.
Hannah segir:
Ef þú þarft bara bíl einu sinni í viku geturðu ekki átt einn sjöunda úr bíl? Ef þú þarft bara stóran bíl einu sinni á ári fyrir útileguna geturðu ekki átt 4% af þeim bíl?
Fólk verður oft reitt þegar pláss fyrir bíla er minnkað. Sumar borgir hafa prófað að loka götum fyrir bílum í nokkra mánuði. Þá getur fólk séð sjálft hvernig það er. Borgin Münster í Þýskalandi gerði þetta. Stokkhólmur í Svíþjóð gerði svipað. Þar voru sett gjöld á umferð í tilraunaskyni. Á sama tíma voru almenningssamgöngur bættar. Svo var kosið um þetta.
Cremer-Schulte segir:
Oftast minnkar mótstaðan þegar fólk hefur prófað þetta í smá tíma. Aðrar borgir eiga erfitt með þetta. Það er af því að stjórnmálamenn eru stressaðir. Enginn vill tapa kosningum út af hjólastíg.
3. Horfa á úthverfin

Borgir eins og Kaupmannahöfn og Amsterdam hafa sýnt okkur eitt: Það er hægt að fækka bílferðum mikið. Það er hægt með því að hafa góðar almenningssamgöngur og marga hjólastíga. Samt eru ennþá margir bílar á götunum. Margir af þessum bílum koma frá stöðum fyrir utan borgina.
Susana López-Aparicio vinnur hjá norskri rannsóknarstofnun sem heitir NILU. Hún segir: Fólk býr oft ekki á sama stað og það vinnur. Þetta skapar stór vandamál. Við sjáum þetta klukkan 8 á morgnana. Þá er mikil umferð í öllum borgum í Evrópu. Fólk er að fara til og frá vinnu.
Það þarf að bæta almenningssamgöngur í úthverfum. Það þarf líka að bæta þær á svæðum þar sem fólk býr og keyrir svo til vinnu í borginni. Þá fær fólk annan kost en að keyra bíl. Það er líka gott ef fólk getur gengið að allri þjónustu. Þetta er kallað
15 mínútna borgin.
Þá þarf fólk ekki að ferðast langt.
Susana tók eftir þessu þegar hún rannsakaði borgina Varsjá í Póllandi. Hún upplifði þetta líka sjálf. Hún flutti úr úthverfi og nær miðbænum í Ósló. Hún segir:
Ég hef ekki bara betri aðgang að strætó. Ég get líka gengið í matvörubúðina, á pósthúsið og á hárgreiðslustofuna.
4. Skilja af hverju fólk keyrir bíl
Sumt fólk þarf að nota bíl. Það býr kannski í sveit þar sem strætó gengur sjaldan eða það er fatlað fólk sem þarf bíl til að komast í vinnu og aðra þjónustu. En margir aðrir gætu notað aðra ferðamáta ef þeir væru betri.

Í mörgum löndum í Evrópu finnst fólki eðlilegt að nota strætó og lestir.
Við þurfum að skilja af hverju fólk notar bíl. Það er fyrsta skrefið til að fólk noti bílinn minna. Brian Caulfield er prófessor við háskóla í Dublin. Brian segir að á kvöldin séu það aðallega ungir karlar sem noti strætó og lestir. Þeim finnist nógu öruggt að ferðast þá.
Brian segir:
Við þurfum að tala við fólk. Þá skiljum við af hverju fólk notar ekki strætó og lestir eða af hverju það gengur ekki eða hjólar. Þegar við skiljum það getum við búið til betri lausnir.
Hér eru dæmi um lausnir:
– Láta strætó ganga lengur á kvöldin.
– Setja upp fleiri götuljós.
– Koma á fót bílaleigum í litlum bæjum. Þá getur fólk leigt bíl þegar það þarf.
Það er líka mikilvægt að breyta hugsunarhætti fólks. Í Norður-Ameríku hugsa margir að fátækt fólk og glæpamenn noti strætó og lestir. En í Evrópu og Asíu er þetta öðruvísi. Þar finnst flestum eðlilegt að nota strætó og lestir.
Í Noregi tók konungurinn lest árið 1973. Hann vildi hvetja fólk til að keyra minna. Í dag notar konungsfjölskyldan í Noregi oft strætó og sporvagna.
López-Aparicio segir:
Þú tekur ekki strætó af því að þú ert fátækur. Þú tekur strætó af því að það er gott fyrir alla.
Heimild: Höfundur. Ajit Niranjan The Guardian. Útgefið 8. Maí 2026
Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)