• einjord@outlook.com
Dýralífið
Erfðaefni ísbjarna breytist til að bregðast við loftslagsbreytingum

Erfðaefni ísbjarna breytist til að bregðast við loftslagsbreytingum

Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir. 2. janúar 2026 kl. 08:47, uppfært kl. 15:22

EPA – JIM LO SCALZO

Erfðaefni ísbjarna er að breytast til að bregðast við loftslagsbreytingum.

Vísindamenn gerðu nýja rannsókn sem sýndi að ísbirnir á Grænlandi eru ólíkir. Það fer eftir því hvar þeir búa.

Þeir eru ólíkir í erfðaefninu sínu.

Háskólinn í East Anglia í Englandi gerði rannsókn og niðurstöðurnar voru birtar í vísindatímaritinu Mobile DNA.

Þær benda til þess að erfðaefni ísbjarna sé að breytast vegna loftslagshlýnunar.

Vísindamenn tóku blóð úr ísbjörnum á Grænlandi og rannsökuðu. Þeir skoðuðu erfðaefnið í blóðinu og báru saman sérstaka parta í erfðaefninu. Þessir partar heita stökklar. Stökklar eru litlir hlutar af erfðaefni. Þeir geta fært sig til á nýja staði í erfðaefninu.

Vísindamenn skoðuðu genin í tengslum við hitastig á svæðunum.

Það er miklu kaldara á Norðaustur-Grænlandi. Veðrið þar breytist ekki eins mikið og á Suðaustur-Grænlandi. Á Suðaustur-Grænlandi er hlýrra og minni ís. Þar getur hitinn breyst mikið.

Vitað er að DNA-raðir í dýrum breytast með tímanum en það getur gerst hraðar vegna álags í umhverfinu, eins og ört hlýnandi loftslags.

Alice Godden er aðalhöfundur rannsóknarinnar og fór í viðtal við ABC í BNA. Alice sagði: Það er sérstakur hópur ísbjarna á Suðaustur-Grænlandi. Þessir ísbirnir eru að breyta erfðamengi sínu. Þeir gera það til að lifa af.

Þetta væri örvæntingarfull leið þeirra til að bregðast við bráðnun hafíss.

Vísindamenn vonast til þess að þessi uppgötvun veiti von um framtíð ísbjarnanna, en því er spáð að árið 2050 verði tveir þriðju allra ísbjarna í heiminum horfnir.

Næstu skref vísindamanna verða að rannsaka ísbirni á öðrum búsvæðum en þau eru um tuttugu um allan heim. Ætlunin er að athuga hvort sömu breytingar séu að verða á erfðaefni þeirra.


Heimild: Upprunnið úr grein á Mbl

Höfundur: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Top