Plokkið

Plokk undir Ingólfsfjalli #4 19. ágúst 2025
Sundið milli aðalvegar og afleggjara undir Ingólfsfjalli Plokk #IIII
Kominir í mark með þetta plokk. Farartækið er 4×4 Exoquad Fjórhjólið er smíðað í Noregi. Það er nóg af notuðum hlutum í plokkinu. Það eru til dæmis: vegastikur, pappi, bílahlutir og járnprófíll. Úrvalið slagar upp í stórmarkað.

Við erum nú déskoti líkir félagarnir. Kallinn er að verða jafn loðinn og Skjálfti.

Ekki skrítið þó að einhver sé móður eftir þessa svaðilför.

Alls konar svona fullorðins svo sem boddívarahlutir og handklæði ásamt skrautlistum.

Þessi mynd er úr öðru plokki á sama stað en tvær atrennur þurfti á þennan smá spotta þarna á milli stræta.
Tengt efni
Texti og myndir: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)
Friðrik Kjartansson
Tags :
