• elonfk@gmail.com
Dauði
ruslaglæpir

Tuga er saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum

Samúel Karl Ólason skrifar 9. janúar 2026 16:00

ruslaglæpir
Mikið magn af rusli og braki hrundi yfir sorpvinnslustöð APJacqueline Hernandez

Að minnsta kosti tveir eru látnir og 36 er saknað eftir að fjall úr rusli og braki hrundi yfir sorpvinnslustöð á ruslahaug á Filippseyjum.

Flóð rusls og braks flæddi yfir hús og eru margir sagðir hafa lokast inni.

Þrettán var bjargað í nótt en einn þeirra lést í.

ruslaglæpir

Allir þeir sem eru látnir eða er saknað störfuðu í sorpvinnslustöðinni.

Björgunarsveitir voru að störfum við að reyna að grafa fólkið út í dag, samkvæmt AP-fréttaveitunni.

Er notast við stórar vinnuvélar til að leita að fólkinu á meðan fjölskyldur þeirra sem saknað er fylgjast með.

Samkvæmt starfsmanni sem rætt var við hrundi ruslfjallið skyndilega og í góðu veðri.

ruslaglæpir

Jaylord Antigua var á skrifstofu sinni þegar rusl flæddi þar inn en honum tókst að skríða gegnum ruslið og sleppa úr húsinu.

„Ég sá ljós og skreið í áttina að því í flýti, því ég óttaðist frekari skriður,“ sagði Antigua.

Ruslahaugar sem þessir hafa lengi valdið áhyggjum víðs vegar á Filippseyjum, bæði vegna skorts á öryggi og vegna mögulegrar mengunar.

Árið 2000 hrundi stærðarinnar haugur af rusli yfir kofabyggð í úthverfi Manila, en þá hafði veður verið vont í nokkra daga.

Eldur kviknaði í skriðunni og rúmlega tvö hundruð manns létu lífið.


Heimild: Er svo. Samúel Karl Ólason. Vísir

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

author avatar
Friðrik Kjartansson
Efst