• elonfk@gmail.com
Umhverfisglæpir
Umhverfis-og orkustofnun beðin um að rannsaka úrgangsmálið

Umhverfis-og orkustofnun beðin um að rannsaka úrgangsmálið

ruslaglæpir
Urðuðu og brenndu úrgang á svæðinu Æfingarsvæði skotíþróttarfélags Hafnarfjarðar

For­svars­menn Skotí­þrótta­fé­lag Hafn­ar­fjarð­ar neit­uðu upp­runa­lega að kann­ast við úr­gang­inn. Um­hverf­is- og orku­stofn­un hef­ur ver­ið beð­in um að koma að mál­inu.

Í apríl greindi Heimildin frá því að umtalsvert magn af úrgangi hafi verið grafinn ólöglega á íþróttasvæði Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar. Umræddur úrgangur var grafinn í manir sem reistar voru til að minnka hljóðmengun frá skotsvæðinu. Nú hefur heilbrigðiseftirlitið lokið skoðun sinni og skilaði af sér eftirlitsskýrslu um málið sem Heimildin hefur undir höndum. Heilbrigðiseftirlitið mætti á svæðið vopnað gröfu til að grafa í hljóðmönina sem félagið reisti. Við skoðun eftirlitsins kom í ljós gríðarlega mikið magn af byggingarúrgangi ásamt dekkjum, raftækjaúrgangi og fleira sem hefði verið urðað á svæðinu ólöglega.

ruslaglæpir
Nærmynd af ruslinu sem er ólöglega losað.

„Manir í kringum skotsvæði hafa verið hækkaðar til að koma í veg fyrir hljóðmengun frá skotsvæðinu. Í eftirlitinu kom í ljós að úrgangur hefur verið urðaður í hljóðmön. Grafið var í hljóðmönina með gröfu og kom þá í ljós byggingarúrgangur, rörbútar, timbur, hellubrot, kaplar, bíldekk og fleiri hlutir sem ekki á að urða með þessum hætti,“ segir í skýrslunni.


Heimild: Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson, 15. september 2026 Heimildin birt orðrétt

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Efst