• einjord@outlook.com
Plokkið
Ruslatínsla & plokk #10: 5. maí 2026. Ölfus í nágrenni Hjarðarbóls

Ruslatínsla & plokk #10: 5. maí 2026. Ölfus í nágrenni Hjarðarbóls

Exoquad plokk X

Hjóla smá og plokk í leiðinni. Næst best ef búið er að missa færni til að ganga nema stutt í einu!


plokk

Einhver góður maður eða kona týnt rafmagnstöflunni sinni og plokkið að sjálfsögðu verður henni komið á réttan stað.

Megi plokkið minnast rafmagnstöflunnar.

En ekki minning náttúrunnar!

plokk

Það komu tæplega tveir pokar út úr þessum þremur kílómetrum.

Hinn hlutinn í formi dósa og íláta sem fara í endurvinnslu.

plokk

Það er nauðsynlegt að taka tillit til Skjálfta við plokkið.

Leyfa honum að velta sér og gera þarfir sínar svo hann þrífist vel og betur en vel.

Svo er alltaf vatn með í ferð svo báðir verði ekki þurrari en Sahara.

plokk

Svo þarf að hnusa í allar áttir og það er jafn nauðsynlegt og að gera þarfir sínar og drekka vatn.

plokk

Svolítið af þessum gulu með dósunum er ágætt, þá sýnist eitthvað vera í tunnunni!

plokk

Hér eru mistökin skráð og mynduð en ég vissi bara ekki að þetta svæði væri svona blautt.

Exoquad skilur ekki meira eftir sig en gangandi maður ef ekki verða svona blaut svæði í yfirferðinni.

Þetta var algjörlega óviljandi en það breytir ekki því að skemmdir áttu sér stað og mér er skylt að greina frá því hér eins og öllu öðru.

Vegagerðin hefur áræðanlega umsjón með þessu svæði og á það, meðfram vegum og það er þeirra að taka sig til og setja hornin undir sig og skamma kallinn!

plokk

Að því sögðu var þetta bara spaugileg uppákoma fyrir kallinn því þarna var reynt að taka nokkur skref til að taka dósina.

En ekki tókst betur til en svo að annar skórinn týndist fyrir lífstíð í svaðinu og hinn endaði því með millilendingu í tunnunni. Fer svo í gámaþjónustunni því þeir þurfa víst að vera tveir svona að venju á afturfótunum 🙂

plokk

Verulega gott að stunda plokkið vel dúðaður í „gluggaveðrinu“, líka ef taka þarf til „sunds“ í leðjuslag en samt er betra að vaða ekki meiri mýrar á ullarsokkunum einum 🙂


Höfundur: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Top