
Eru nýjar rúðuþurkur umhverfisvænar eða hvað er að frétta?
Rúðuþurrkur sem keyptar eru kannski einu til tvisvar sinnum á ári líta út fyrir að vera saklausar, eða hvað?

Hægt er að kaupa rúðuþurrkur sem eru með passandi tengistykkjum við rúðuþurrkarm bílsins.
Svo er hægt að kaupa svokallað Universal en þar fylgja með nokkuð margir hlutir til tengingar við rúðuþurrkuarm margra gerða bifreiða.
Umhverfinu gæti liðið fyrir að ódýrara er að kaupa Universal-þurrkur frekar en passandi af hverri tegund sem minna er af fylgihlutum með sem eru allir úr plasti! Mismunurinn er sirka 40%. Verðið dæmi aðeins úr einni verslun.
Eins og svo oft áður byggist endurvinnslumöguleikarnir á því hversu ábyrgur kaupandinn er í því að koma plasthlutunum í réttan farveg ef hægt er að enduvinna hlutina.
Sannar hið forkveðna að margt smátt gerir eitt stórt annað hvort til sóðaskapar eða þess að gera það sem hægt er í að farga rétt.
Þannig að staðreyndin talar sýnu máli með smá aðstoð margföldunnar
Ef aðeins eitt sett af rúðuþurrkum er verslað á ári af öllum jarðarbúum sem þurfa þennan varahlut, mínus einhverjir sem kaupa svo orginal eða passandi fyrir hverja bíltegund fyrir sig.
Samanlögð niðurstaða er stjarnfræðileg summa, sem skilar af sér stjarnfræðilegum ruslahaug eða hafinu sem eitt atriði af miljónum hluta í okkar neyslu.
Svo ekki sé nú tekið tillit til afgangsins af afurðum þessarar varahlutakaupa. Hugsum aðeins um þetta!
Skrifað af: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)