• elonfk@gmail.com
Umhverfisglæpir
Náðust á video hendandi sorpi á annars manna land

Náðust á video hendandi sorpi á annars manna land

Myndband sýnir fólk henda rusli úr farartæki. Bíllinn er fyrir hreyfihamlaða (Motability). Það þýðir að skattgreiðendur borga fyrir ökutækið. Gerendur henti ruslinu á land sem það átti ekki.

sorpglæpir
Karl og kona gripin glóðvolg við að losa rusl ólöglega á einkalandi í Astley, Warwickshire, 30. maí

Upptakan er frá 30. maí. Það sýnir mann og konu leggja svörtum bíl við vegkant. Þetta gerðist í þorpinu Astley í Warwickshire.

Maðurinn og konan tóku rusl aftan úr farartækinu. Svo hentu þau úrgangnum á götuna og óku í burtu.

Parið vissi ekki að það væri á einkalandi. Landeigandi var með öryggismyndavélar. Þess vegna náðist atvikið á ,,filmu”.

Lögreglan og bæjarráðið rannsökuðu málið sameiginlega. Þau fundu gerendurnar sem henti ruslinu sem játaði að hafa hent sorpinu ólöglega.

sopglæpir
Myndskeið úr öryggismyndavél sýnir hjónin losa fatafylli af rusli úr bíl sínum frá Motability.

Svift bílnum!

Lögreglan tók bílinn af parinu. Þau þurftu hvort um sig að borga 1.000 pund í sekt. Samningnum þeirra um Motability-bílinn var líka sagt upp.

Margaret Bell er bæjarfulltrúi segir:

Það er sjálfselska að henda rusli ólöglega sem spillir umhverfinu og er ljótt. Það kostar líka landeigendur og skattgreiðendur peninga.

M. Bell segir líka:

Þetta mál sýnir að það er gott þegar bærinn og lögreglan vinna saman. Við fundum fólkið fljótt. Það var vegna þess að við höfðum góð sönnunargögn. Einstaklingarnir þurftu að taka ábyrgð.

Bella segir eining:

Við viljum að almenningur láti vita ef það sér einhvern henda rusli ólöglega. Þá getum við gert eitthvað í málinu.

sopglæpir
„Sjálfselsku“ hjónin voru sektuð um 1.000 pund hvort eftir að þau játuðu ábyrgð á „ólöglegri losun úrgangs“

Fulltrúi Motability sagði:

Farartækin frá okkur eru fyrir fatlað fólk. Við tökum það mjög alvarlega ef einhver misnotar kerfið. Við bregðumst hratt við til að vernda kerfið.

Hann bætti við:

Sérstök deild hjá okkur rannsakaði málið.

Eftir það var samningi fólksins sagt upp.

Talsmaður lögreglunnar sagði:

Þann 30. maí hentu ökumaður og farþegi úrgangi ólöglega.

Lagnanna vörður bætti við:

Lögreglan vann með bæjarráðinu og tók bílinn samkvæmt umhverfislögum.


Heimild: eftir Will Hallowell, fréttamann Birt: 7. september 2026. Daily Mail.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Efst