Vilja hætta við bann á dísil- og bensínbílum í ESB
Engin höfundur tiltekinn: Mbl 8.12.2025 19:30
Aukinn þrýstingur frá aðildarríkjum Evrópusambandsins, þingmönnum og bílaiðnaðinum gæti orðið til þess að framkvæmdastjórn ESB seinki endurskoðun á fyrirhuguðu banni við sölu nýrra bensín- og dísilbíla árið 2035.

Minnst sjö aðildarríki, Búlgaría, Tékkland, Þýskaland, Ungverjaland, Ítalía, Pólland og Slóvakía, hafa sent bréf á framkvæmdastjórnina og kalla eftir því að bannið verði annaðhvort afturkallað eða því breytt þannig að leyft verði að selja tvinnbíla einnig eftir 2035.
Ríkin telja öðrum kosti hætta á að evrópskur bílaiðnaður standist ekki samkeppni á alþjóðamörkuðum.
Vilja sjálf velja sínar leiðir
Löndin segjast styðja markmið um minni kolefnislosun en leggja áherslu á svokallað tæknilegt hlutleysi sem myndi gefa ríkjunum frelsi til að velja mismunandi lausnir til að ná loftslagsmarkmiðum.
Þar eru meðal annars nefndir tvinnbílar, vetnisbílar og bílar knúnir lífeldsneyti.
Ríkin benda jafnframt á skort á hleðslustöðvum og vetnisáfyllingarinnviðum um allt sambandið og kalla eftir auknum stuðningi frá framkvæmdastjórninni.
Þungur róður fyrir evrópskan bílaiðnað
Í öðru bréfi, undirrituðu af fulltrúum frá Þýskalandi og Ítalíu, er varað við því að framtíð sjálfstæðs evrópsks bílaiðnaðar sé í húfi.
Bent er á háan orkukostnað, skort á rafhlöðum og öðrum íhlutum og minnkandi eftirspurn eftir rafbílum en hægt hefur á innkaupum rafbíla í löndum sambandsins.
Á sama tíma hafa kínversk rafbílamerki, á borð við BYD, sótt hratt inn á evrópskan markað.
Jafnvel Tesla hefur misst verulegan markaðshlut í nokkrum Evrópulöndum á síðustu misserum, samkvæmt opinberum tölum.
Talsmenn bílaiðnaðarins segja markmið ESB um algert bann við nýjum bensín- og dísilbílum árið 2035 ekki lengur raunhæft án stórfelldra uppbygginga á raforkukerfum og hleðsluinnviðum.
Framkvæmdastjórn ESB hyggst kynna endurskoðun á kolefnisreglum fyrir bíla og sendibíla í vikunni.

Heimild: Mbl
Birt orðrétt.
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)