
Haraldur vonlítill um að hægt sé að snúa þróuninni við
„Margir telja að nú sé að draga úr straumnum“
Kristinn H. Guðnason Mánudaginn 13. október 2025 16:30

Haraldur Sigurðsson, prófessor emeritus í jarð- og jarðefnafræði, segir að miðað við hvernig ríkisstjórnir stórvelda tali sé það tapað mál að reyna að draga úr losun efna sem valdi hnattrænni hlýnun.
Talið sé að hafstraumurinn sem beri hita norður í Atlantshafi muni dvína á 50 til 100 árum.
Haraldur fjallar í færslu á samfélagsmiðlum um AMOC, hringstrauminn í Norður-Atlantshafi sem flytur mikla hitaorku norður á bóginn. En Golfstraumurinn svokallaði er einn þáttur í honum.
„Margir telja að nú sé að draga úr straumnum sem mun valda djúptækum loftslagsbreytingum á norðurslóðum, bæði í hafinu og á landi,“ segir Haraldur.
Hringrásinni sé enn haldið við vegna mismunandi seltu og hita í hafinu en margar stórar spurningar blasi við, svo sem hvenær hringrásin hætti, hvaða áhrif það hafi á loftslag í Norður-Evrópu og Grænlandi, hvaða áhrif það hafi á lífríkið, fiskistofna og fleira. Einnig hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir stöðvun AMOC.

„Svarið er auðvitað að draga úr losun koltvíoxíðs og annarra efna sem valda hnattrænni hlýjun,“ segir Haraldur en er þó vonlítill um það.
„Sennilega er það því miður tapað mál, ef dæma skal út frá stefnum og aðgerðum stórveldanna.“
Nýjar rannsóknir vísindamanna í Utrech sýna hins vegar að vendipunkturinn sé skammt undan og birta hann skýringarmyndir.
Það er að stór svæði Atlantshafsins kólni um 4 til 6 gráður sem og belti undan austurströnd Norður-Ameríku hlýni um það sama þegar Golfstraumurinn færist norðar.
Seinni myndin sýnir breytingar á yfirborðshita sjávar frá 1993 til 2021. Myndirnar sýna svipaða þróun.

„Þýðir það að AMOC-straumurinn sé þegar byrjaður að slaka á?“ spyr hann að lokum.
„Talið er að AMOC-straumurinn muni ekki hverfa í einum hvelli, heldur muni það taka 50 til 100 ár að straumurinn dvíni smátt og smátt.“
Heimild: Höfundur. Haraldur Sigurðsson, prófessor, emerítus
Útgefin: Mánudaginn 13. október 2025 16:30 DV.
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)