• einjord@outlook.com
Mótmæli
Flottræfilshátturinn tekur í nýjar hæðir með skoðanakúgun

Flottræfilshátturinn tekur í nýjar hæðir með skoðanakúgun

Viljum við í raun mörg okkar halda áfram að þykjast vera ,,Ameríkanar” eða viljum við vera flottræflar!

Hvers vegna er ekki neytendamál að taka fram líka mínusana í sölu á þessari vöru, það er bílar og farartæki ásamt vélum alls kyns sem blása CO2 út í andrúmsloftið?

Líka þær vélar sem ekki blása út CO2 nema takmarkað (rafmagnsbílar og annað).

Hvar er neytendaverndin og virðing fyrir jörðinni okkar?

Ég vil ekkert banna eitt né neitt heldur að fólk átti sig hugsanlega á fyrir það fyrsta á því hvað er nauðsynlegt og hvað ekki; við höfum áður þurft að sýna aðhald í slíku fyrir langt um minni hagsmuni en blessaða jarðarkringluna.

Bílasala Reykjaness

18. mars kl. 15:02 ·

🎯Núna er tíminn til að láta drauminn rætast.

🅿️LAND ROVER RANGE ROVER SPORT R-DYNAMIC

🟨Árgerð: 2019

🟧Verð: 6.990.000.-

🟩Verð áður: 7.490.000.-

🔺Akstur: 167þkm

☎️Sími: 547-9100 eða hlekkurinn fyrir frekari upplýsingar.

Fridrik Kjartansson

Sóun! Waste!

Höfundur

Bílasala Reykjaness

Fridrik Kjartansson jæja þú verður að eiga þessa skoðun við þig sjálfan…við verðum því miður að flagga þig út…


Við skulum hlýða og passa okkur á því hvað við segjum í

kirkjum

bíismans og á gresjum græðginnar sem tekur ekkert tillit til náttúrunnar okkar og stofnunar okkar sem ætti þó að hafa eitthvað að segja, búin að fóstra okkur í hundruð alda. Það að segja skoðanir sína í,

kössum

þar til gerðum skilar aðeins svona útkomu.

Við erum einfaldlega ekki vön því að fólk tali hug sinn hvar sem er án þess að meiða persónuna sem á ekki að vera málið en er engu að síður í kommentakerfum að minnsta kosti og til vara svo enginn heyri.

Ég tek það fram að þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég fæ á mig boycott en það sýnir bara eitt: Við erum tilbúin (sum okkar) til að græða peninga umfram allt annað og þar með líf okkar sjálfra, sem segir sig sjálft í

eyðileggingarherferð margra okkar

gegn jörðinni okkar, heimilinu okkar.


Skrifað af: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

Top