
„Ég er gjörsamlega að verða brjáluð“
Kristjana Jóhannsdóttir segir frá. Enginn skráningaraðili eða annar höfundur skráður. Mbl.is

Íbúi í Vogahverfi Reykjavíkur segir umferð flutningabíla um Kleppsmýrarveg mæða mikið á íbúum hverfisins.
Þá sé mesta mildi að ekki hafi orðið stórslys á götunni og furðar hún sig á að Reykjavíkurborg hafi ekki gert umferðarbreytingar þegar íbúðarhús við veginn voru reist.
Málið er að það hefur gleymst að gera ráð fyrir því að nú sé hér íbúabyggð en ekki bara iðnaðarsvæði og þessi umferð hérna fram hjá húsinu okkar er allan sólarhringinn.
Það koma flutningabílar alls staðar af landinu á nóttunni, eldsnemma á morgnana og mjög seint á kvöldin, bara allan daginn, og þeir keyra alltaf hérna fram hjá húsinu okkar,
segir Kristjana Jóhannsdóttir, íbúi í Bátavogi, í samtali við mbl.is.
Hún segir umferðina mæða mikið á íbúum í Bátavogi 1, 3, 5 og 7 þar sem heimili þeirra standi alveg við götuna.
Við vorum hérna á undan ykkur
Flutningabílana segir hún vera á vegum flutningafyrirtækjanna Eimskips og Samskipa og kveðst hún hafa haft samband við fyrirtækin.
Þeir hjá Eimskip voru mjög almennilegir en Samskip var bara með leiðindi og sagði bara: Við vorum hérna á undan ykkur.
Þá bendir Kristjana jafnframt á að búið sé að sérhanna götu ætlaða fyrir stóra flutningabíla sem sé rétt hjá.
Ökumenn flutningabílanna hunsi hins vegar þá leið og haldi áfram að aka um Kleppsmýrarveg til að stytta sér leið.
Mikill hávaði, mengun og ógeð sem fylgir
Minn svefnherbergisgluggi snýr út að þessari götu og ég er gjörsamlega að verða brjáluð því að ég myndi helst vilja hafa opinn glugga á nóttunni en það bara er ekki hægt.
Það er bara það mikill hávaði, mengun og ógeð sem fylgir þessu,
segir Kristjana og nefnir að gluggakistur sínar séu oft svartar vegna loftmengunar frá bílunum.
Þá sé hávaði þeirra ekki minna vandamál en hún segir ökumenn bílanna gjarna á að nota flauturnar snemma á morgnana.
Þetta er eins og þokulúðrar.
Þegar þeir eru að flauta hérna fyrir utan herbergisgluggann klukkan 6 á morgnana er ekkert skemmtilegt
Mesta mildi að það hafi ekki orðið stórslys
Kristjana segir upplifun íbúa með þeim hætti að svæðið sé í raun ekki hannað fyrir umferðina sem þar er og bendir jafnframt á að auk Eimskips og Samskipa sé einnig töluverður fjöldi annarra fyrirtækja á svæðinu.
Þá hafi margir íbúar lýst yfir ótta við slys, sérstaklega í ljósi þess að mörg börn búa í blokkunum.
Þetta er svo stórhættulegt.
Það er bara mesta mildi að það skuli ekki vera búið að verða stórslys hérna fyrir utan því að sumir keyra fram hjá eins brjálæðingar.
Minnist hún þess að borgin hafi sett upp hraðahindrun eftir kvartanir íbúa og hámarkshraðinn þá lækkaður í 30 km/klst.
Hraðahindrunin sé hins vegar þess eðlis að hún sé fyrir miðju götunnar og hafi því engin áhrif á ferð stærri bíla þar sem hún er ekki nægilega stór.
Hraðahindrunin fer bara undir bílinn.
Það er bara fyrir minni bíla sem þetta virkar.
Kallar eftir breytingum
Hún segir sjálfa sig sem og aðra íbúa hafa sent ábendingar og erindi á fjölmarga, þar á meðal Alþingismenn í kjördæminu, án árangurs.
Ég myndi vilja að það yrði eitthvað gert í þessu,
segir Kristjana áður en hún sendir að lokum borginni pillu.
Reykjavíkurborg er bara alveg að skíta á sig með þetta, að hafa ekki gert ráð fyrir því þegar það var verið að byggja þetta hverfi að það þyrfti eitthvað að breyta aðeins umferðarstýringunni.
Ein jörð.org er málsvari þeirra sem finnst þeir ekki koma hlutunum á framfæri og vilja réttlæti og jafnrétti í umhverfismálum! Umhverfismál eru líka jafnræði.
Vefpóstur: einjord@outlook.com
Heimild: Er svo. Mbl.is
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)