
Ætla að hreinsa olíumengun við íbúðarhús eftir tveggja ára bið
Heilbrigðiseftirlit Austurlands ætlar að hreinsa olíumengaða íbúðalóð á Eskifirði á næsta ári. Þá verða nærri tvö ár síðan þeim var tilkynnt um mengunina
Ólöf Rún Erlendsdóttir. 28. desember 2025 kl. 17:06, uppfært kl. 18:56

RÚV – Rúnar Snær Reynisson
Heilbrigðiseftirlit Austurlands hyggst ráðast í olíuhreinsun á tveimur lóðum á Eskifirði eftir ítrekaðar tilraunir til að fá fyrirtækið Mógli ehf. til að fjarlægja mengaðan jarðveg.
Það telst nú fullreynt og verða lóðirnar hreinsaðar á kostnað fyrirtækisins á nýju ári.
Það fer að nálgast tvö ár síðan íbúar á Eskifirði urðu varir við olíumengun á tveimur lóðum.
Á öðru þeirra stendur hús í eigu fyrirtækisins Mógli ehf. og þar eru gamlir tankar frá tímum olíukyndingar.
Í næsta húsi hefur fjölskyldan búið við megna olíulykt síðan í mars 2024, og eftir að börn komu olíublaut heim eftir útilegu barst grunurinn fljótt að tönkunum á næstu lóð.
31. október 2025
Gert að hreinsa lóðina á næstu tveimur vikum
Selma Margrét Sverrisdóttir. 31. október 2025 kl. 11:36, uppfært kl. 12:11

RÚV – Rúnar Snær Reynisson
Heilbrigðisnefnd Austurlands hefur samþykkt að fella niður dagsektir gegn því að húseigendur á Eskifirði hreinsi lóð sína fyrir 15. nóvember.
Verði það ekki gert skal heilbrigðiseftirlitið sekta um hreinsun á kostnað eiganda.
Verkfræðistofan Efla var í haust fengin til að rannsaka mengunina og leggja til aðgerðir.
Í ljós kom að olíumengun var 28 sinnum meiri en leyfilegt er í íbúabyggð.
Tekið er fram í bókun heilbrigðisnefndar að verði lóðin ekki hreinsuð fyrir 15. nóvember, eins og segir í verkáætlun, sjái heilbrigðiseftirlitið um hreinsun á kostnað eiganda.
23 janúar 2025
Gamlir olíutankar tifandi tímasprengjur í húsagörðum
Gamlir tankar frá tímum olíukyndingar eru tifandi tímasprengjur í húsagörðum víða um land. Á Eskifirði lak olía úr slíkum tönkum og mengaði garð og kjallara nágranna. Sá sem ber ábyrgð á menguninni hefur ekki brugðist við þrátt fyrir dagsektir.
Rúnar Snær Reynisson

RÚV – Rúnar Snær Reynisson
23. janúar 2025 kl. 10:13. Rúnar Snær Reynisson
Við Strandgötu á Eskifirði standa húsin þétt og á milli tveggja húsa eru gamlir olíutankar grafnir í jörð og tilheyra húsi númer 61.
Í mars í fyrra fór að bera á olíulykt í næsta húsi neðan við tankana.
Þar býr fjölskylda með fimm börn og uppgötvaðist lekinn úr tönkunum þegar börnin komu olíublaut inn úr feluleik.
6. janúar 2025
Fjölskylda á Eskifirði býr við olíumengun og dagsektir hafa engu breytt
Íbúar í húsi við Strandgötu á Eskifirði hafa glímt við olíulykt í húsi sínu í að verða eitt ár. Fyrirtækið sem á húsið við hliðina og olíutanka sem láku hefur ekki brugðist við, jafnvel þó að dagsektir hafi hlaðist upp í rúma tvo mánuði.
6. janúar 2025 kl. 12:46, uppfært kl. 15:17. Rúnar Snær Reynisson

Götuvefsjá – ja.is
Dagsektir hlaðast á fyrirtæki sem á hús á Eskifirði og hefur ekki hreinsað olíumengaðan jarðveg á lóðinni.
Olíufnykur angrar fólk sem býr í næsta húsi.
Börnin komu inn olíublaut
Við Strandgötu 61 á Eskifirði stendur hús í eigu fyrirtækisins Móglí og við það eru gamlir tankar frá tímum olíukyndingar.
Í tönkunum voru olíuleifar og í mars í fyrra varð vart við mengun.
Íbúar í næsta húsi fundu lykt en vissu ekki hvaðan hún kom og því var ólíft í húsinu.
Einn daginn komu börnin olíublaut inn úr feluleik og þá bárust böndin að tönkum við næsta hús.
Fulltrúar heilbrigðiseftirlits Austurlands fóru á staðinn, staðfestu mengun og létu tæma tankana.
Kröfur voru gerðar á fyrirtækið sem á húsið og ber ábyrgð á tönkunum.
Heilbrigðiseftirlitið fékk sérfræðing frá Olíudreifingu til liðs við sig, mann sem hefur reynslu af viðbrögðum við mengun.
Í framhaldinu var plast lagt yfir ósteypt kjallaragólfið í íbúðarhúsinu og barki þræddur þar inn með loftdælu sem tryggir ein loftskipti á hverjum klukkutíma.
Dagsektir komnar yfir 1,3 milljónir
Heilbrigðiseftirlitið hefur mánuðum saman reynt að fá Móglí til að fjarlægja olíutankana og skipta um jarðveg án árangurs.
Dagsektir voru lagðar á fyrirtækið frá 1. nóvember, 20 þúsund krónur á dag.
Þær eru enn að safnast upp og eru komnar yfir 1,3 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu kemur það fyrir endrum og sinnum, ekki síst í rigningu, að olíulykt finnst í húsinu íbúum til mikils ama.
Eftir því sem fréttastofa kemst næst komu olíutankarnir frá Shell á sínum tíma sem útvegaði fólki tanka við hús og fylgdu þeir með í kaupum þegar fasteignin var seld.
Móglí mun vera málningarfyrirtæki í Hafnarfirði en er ekki með virka starfsemi á Austurlandi.
Ekki náðist í fyrirtækið við vinnslu fréttarinnar og uppgefið símanúmer er óvirkt.
30 april 2014
Gleymdir tankar skapa sprengihættu
Ríkisútvarpið
30. apríl 2014 kl. 19:58
Mildi þykir að ekki fór verr þegar öflug sprenging varð í tanki undir aflagðri bensínstöð Olís í Neskaupstað.
Fyrirtækið lét ekki fylla tankinn með sandi líkt og skylt er.
Frá því síðdegis í gær hefur eins konar sprengigígur verið við gömlu bensínstöðina í Neskaupstað.
Smiður var að skera burt loftunarrör með slípirokki og við það kviknaði í bensíngufum.
Járnstyrkt steypuplatan fór nánast í mél en það varð smiðnum til happs hvað tankurinn liggur djúpt.
Svona tanka sem skildir eru eftir í jörðu á að fylla með sandi.
„Allavega gerðum við það ekki, og heilbrigðiseftirlitið fylgdi því ekki eftir að það yrði gert.
Byggingarfulltrúi tók það ekki út þegar það var farið af stað með félagsmiðstöðina þarna.
Fullt af bjöllum sem hefðu átt að hringja en gerðu það ekki,“ segir Samúel Sigurðsson útibússtjóri Olís.
Heilbrigðiseftirlitið segist lítil afskipti hafa haft af stöðinni enda hafi reglugerð um megnandi starfsemi rétt náð að taka gildi áður en stöðin var aflögð.
Hún hafi því í raun aldrei verið háð starfsleyfi.
Sá sem keypti eignina af Olís árið 2004 fékk afsal þar sem lofað var að tankar yrðu gerðir hættulausir í samvinnu við heilbrigðiseftirlit innan nokkurra mánaða.
Þegar tankurinn sprakk voru liðin næstum tíu ár.
„Svo mikið er ljóst að það er hvergi í gögnum heilbrigðiseftirlitsins bréf eða erindi þar sem er óskað eftir að við tökum út staðinn í lok starfseminnar.
Ég er búinn að senda póst til allra olíufyrirtækjanna og biðja þau um að huga að tómum tönkum á sínum bensínstöðvum því að við verðum að læra af svona hlutum,“ segir Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands.
Nú taka við fundahöld um hvort fjarlægja eigi tankana í Neskaupstað en hættan er liðin hjá því gufur myndast ekki á sama hátt í dísiltönkum.
Gamlir tankar leynast líka við íbúðarhús.
Það er full ástæða til þess að fjarlægja þá því að það getur kannski ekki verið þessi gasmyndun en drullan og olían sem er kannski í þessum gömlu húskyndingartönkum er eitthvað sem menn ættu að láta fjarlægja,“ segir Samúel.
Heimild: Rúv
Skráning: Friðrik Kjartansson
Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)