Einar Sveinbjörnsson Úthöfin eru helsti varmageymir jarðar. Þau taka upp meira en 90 prósent af þeim umframvarma sem aukin gróðurhúsáhrif valda. Hiti heimshafanna er því lykilvísir um langtímabreytingar á loftslagi. Myndin er fengin úr rannsókn tuga vísindamanna við fjölmargar stofnanir. Birtist í gær, föstudag, í Advances in Atmospheric Sciences. Heildaraukning varmans í úthöfunum á síðasta ári nam 23 Zetta-Júlum (23 […]