• elonfk@gmail.com
Dauði
utanvega akstur

Erum við Íslendingar þess umkomnir að tala hátt með yfirgangi?

Eru Íslendingar með eins viðbrögð gagnvart hlýnun jarðar?

Ég vildi óska að Íslendingar sýndu sömu viðbrögð þegar kemur að hlýnun jarðar. Ég vildi líka óska að Íslendingar sýndu sömu viðbrögð þegar Frakkar skemmdu náttúruna um daginn á sama hátt.

Frakkarnir drápu engan en hlýnun jarðar drepur! Samt sem áður er partur af Íslendingum eins og í doða yfir því að umheimurinn sé að breytast og

hiti fólk til bana!

Það er talað um að taka bílana af Frökkunum, því ekki að taka svona eins og helming bílaflotans af jarðarbúum og/eða okkur Íslendingum? Það væri hjálp í rétta átt. Svo að skera niður flug um helming, við höfum alveg efni á því að skera okkur svolítið inn að beini í ferðalögum, það er ekki lífshættulegt!

Á þessari glæsilegu eyju sem Ísland er virðast sumir ekki skilja þjáningar fólks annarra landa og heimsálfa. Ef við skildum eitthvað væri búið að skera niður alla neyslu sem fellur undir bruna, sem aftur veldur hlýnun! Sumir skrifa um vanvirðingu við Ísland. Já, þessi saknæma hegðun að spóla upp landinu okkar er vanvirðing en hver er okkar Íslendinga vanvirðing við umheiminn?

Við erum að hætta að taka þátt í að taka á móti flóttafólki frá heimsbyggðinni sem flýr oft vegna loftslagsbreytinga en á meðan tökum við þátt í að menga fyrir sama fólkinu sem nú leitar ásjár okkar. Hversu mikil vanvirðing er það? Þá kemur fullyrðingin:

Við erum svo fá og lítil að það hefur ekkert að segja að grípa til loftslagsaðgerða!

En stöldrum aðeins við og minnumst þess að ganga undan með fordæmi um að hegðun skili sér í hermingu sömu hegðunar. Styst er að taka dæmi um uppeldi barna.

Ungur nemur, gamall temur.

Það þarf heilt þorp til að ala upp barn.

Þessar setningar eru staðreynd, ekki aðeins orðagjálfur sem hægt er að heimfæra á hegðun okkar í að ganga fram fyrir skjöldu. Okkur er líka tíðrætt um að láta fólk sem fremur svona næstum mannsmorð borga nógu mikið. En þegar kemur að því að borga nógu mikið til að hjálpa til við að afstýra verstu afleiðingum hlýnunar jarðar fer íhaldið og fleiri í bremsu og segja nei!

Mikið er líka skrifað og talað um löggæsluna, hversu góð eða lummó hún er og að hún sekti jafnvel ekki nógu mikið! Hverjir eru löggæslumenn loftslagsins? Já, einmitt, það erum við sem byggjum heimilið jörð og erum við nógu ötul við vörnina og sektum við nóg?

Höfundur: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

P.S.

Hitabylgjur og mannleg heilsa – hvað gerist?
fólk í ofurhita
Mynd fengin að láni frá mbl
Orðrétt úr mbl.

Erlent | AFP | 26.6.2026 | 23:56


Sjúkrahús víða um Evrópu eru nú yfirfull af fólki sem orðið hefur illa úti í þeirri hitabylgju sem nú gengur yfir álfuna, fjölmargir hafa látið lífið í hitanum og í dag er reiknað með því að 150 milljónir Evrópubúa hið minnsta muni upplifa hita yfir 35 gráðum á eigin skinni.


author avatar
Friðrik Kjartansson
Top