• elonfk@gmail.com
Plokkið
plokk

plokk #8. 18. apríl 2026. Í Ölfusi við Þorlákshafnarveg

Exoquad plokk VIII

Plokk VIII í Ölfusi og erum búnir að tæma eina tunnu á tveimur kílómetrum öðrum megin vegar, fyrri legginn. Gluggaveðrið fræga er við völd í dag. Ég er mikið búinn að rannsaka stöðugleika hjólsins og þyngdarpunktur bæði hjólsins og ökumanns er svo neðarlega að mér hefur ekki tekist enn að velta en reyna má áfram!

plokk 18 april

Sól yfirleitt en samt kuldagallaveður og jafnvel hanskar. En Ísland er yndislegt, líka í Ölfusi.

plokk 18 april

Hér er svo að líða á seinni part leggsins á hinni hlið vegarins.

Skjálfti er bara ánægður með göngutúrinn en ég reyni að passa að fara ekki yfir 4-6 km hraða með hann fastan við #Exoquad hjólið. Það er Skjálfta passlegt.

Hjólið var að koma úr uppfærslu og núna er hámarkshraðinn 25 km í háa drifinu (var 16 km), en þá er hjólið ekki í fjórhjóladrifi heldur bara afturhjóladrifi. Hámarkshraðinn í lága og fjórhjóladrifinu er 9 km.

Svo voru viðbrögðin mýkt á stýrikerfinu til að hjólið tæki mýkra á, sem er grundvallaratriði t.d. við að taka af stað úr brattri brekku eða í viðkvæmum gróðri.

Ekki láta spóla.


Skjálfti og Friðrik plokkarar á Plokkvagninum.

author avatar
Friðrik Kjartansson
Top