Ísland hefur samþykkt nýjan samning um hafið Samningurinn heitir BBNJ-samningurinn. Hann er hluti af hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna. Markmiðið er að vernda lífið í hafinu. Þetta á við um svæði sem ekkert ríki á. Jóhann Páll Jóhannsson er umhverfisráðherra. Hann fór á ráðstefnu í Frakklandi í júní. Á ráðstefnunni sagði Jóhann Páll að Ísland myndi hjálpa til við að samþykkja samninginn. […]