• elonfk@gmail.com
Slys vegna loftslagsbreytinga
flóð í síle 8 og 9 okt

3. Video: Mikil neyð vegna flóða í Síle

Video/myndband 1. Það er mikil neyð í Síle. Einn látinn. Það var mjög mikil rigning eða 146 mm 8. og 9. október 2026. Þess vegna urðu flóð og stór aurskriða í borginni Santíagó. Vídeó/myndband sýna hraðan straum vatns sem tók með sér bíla og rusl. Myndir sýna líka rútu sem fór á hliðina og straumurinn tekur. Hús fóru á kaf í vatni. Fyrstu fréttir segja að sex manns hafi slasast. Eitt af þeim var eins árs gamalt barn. Stjórnvöld gáfu út rauða viðvörun í tíu bæjum og björgunarsveitir náðu víða að hjálpa fólki. Neyðin var líka í bænum Talagante. Þar fór áin Mapocho yfir bakkana. Stjórnvöld sögðu fólki hafa sig á brott. Tölur og upplýsingar geta breyst. Það gerist þegar stjórnvöld í Síle gefa nýjar upplýsingar.

Video/myndband 2. Það varð flóð í Las Condes í Síle en Las Condes er hverfi betur stæðra borgara í höfuðborginni. Það rigndi mjög mikið. Göturnar fóru á kaf í vatn. Bílar skoluðust burt. Fólk komst ekki út úr húsum. Vatn flæddi líka inn á sjúkrahús. AFP fréttastofan greinir frá.

Video/myndband 3. Óhugnanlegt myndband sýnir þegar vegur fór undir vatn. Myndbandið er úr eftirlitsmyndavél. Það sýnir veg í borginni Santiago. Santiago er höfuðborg landsins Síle. Vegurinn hvarf undir vatn. Þetta gerðist mjög hratt. Malbikið varð að drullufljóti á nokkrum sekúndum. New York Post fréttir.


Heimild: You Tube. Asianet News English, AFP fréttastofan og New York Post fréttir.

Þýðendur: Friðrik Kjartansson og erlendur.is (Málstaður)

Skráning: Friðrik Kjartansson

Yfirlestur: malfridur.is (Málstaður)

author avatar
Friðrik Kjartansson
Top